Góðan dag.. jæja klukkan er að ganga tólf og ég á að vera að
lesa í Egilssögu.
Var eiginlega að koma úr vinnuni, fékk mér samt brynjuís áður en ég
fór heim...
mm.. nammi... nema það að ég missti "smá" af honum í gólfið þegar
ég var að reyna klæða mig úr skónum.. já slíkt gerist þegar maður
er einn og yfirgefin
Helgin var ágæt, fór á Græna Hattinn á laugardeginum, geggjaðir
tónleikar, varð svo heilluð að ég varð að kaupa mér bæði diskinn
með Dikta og Ampop.
sé ekki eftir því nei!
svo lennti í ég smá skemmtilegheitum sem tengjast henni
Helenu nokkurrri Hammer á allan
hátt! sótti hana fyrir utan Oddvitann, kéllan alveg í banastuði og
náði ekki úppúr sér orði rétt. Keyrði með hana um stund og
svona...síðan byrjar hún að vera með læti og segjandi mér að stoppa
bílinn því hún þurfi að æla.. og ég bara já bíddu aðeins ætla finna
henntugan stað.. en nei hún bara opnar hurðina þegar ég var að
rauðu ljósi og hengur með hálfan líkaman útur bílnum, svo kemur
náttlega meira fólk á eftir mér bíbbandi og lalalal það er komið
grænt ljós og ég ennþá kyrrstæð.. og já.. síðan hleypur hún Helena
bara útur bílnum. haha. svo finn ég hana í 10-11 (alls ekki að gera
sig að fíbbli) og kem henni aftur inní bíl. síðan þegar við erum á
borgarbrautinni neyðist ég til þess að keyra eitthvert útí kannt,,
(ekki mikið um kannta þar samt) því henni dettur í hug að æla
aftur, og þannig hélt svo kvöldið áfram þangað til ég fékk að
skutla henni heim, samt var ég stopp fyrir utan húsið hennar í
svona korter því hún hafði svo mikið að segja mér! hahaha.. ákvað
að setja smá pistil um hana... gerði nebblega svo lítið um helgina
að ég veit bara ekkert hvað annað ég get skrifað.. þetta var nú
bara lífsreynsla eitt og sér!
ungfrú norðurland um helgina... maður mætir
þangað eikkvað smá þar sem ég er að fara syngja.. annars er ég ekki
að fara gera neitt um helgina..
bráðum er ég ekki búin að smakka á áfengi í 3 vikur.. shæse!!!

svona mun ég líta út næst er ég fæ á því að smakka!
Til í tuskið .. og þá eigið þið að kalla mig RambóBug!GRr
sneffs..
verð að koma einu hérna.. við eigum að vera með svona
fréttakynningu í Félagsfræði og ég var bara eikkvað að skoða mig um
á netinu þegar ég sé eina frétt!
Veiktust lífshættulega af
nýju lifi
Sex manns eru á gjörgæslu, þar af eru tveir í lífshættu, á
sjúkrahúsi í Lundúnum eftir að hafa veikst af nýju lyfi sem verið
er að gera tilraunir með. Sexmenningarnir voru allir við góða
heilsu þegar þeir féllust á að taka þátt í prófun á nýju
bólgueyðandi lyfi. Það var fyrirtækið Parelex sem stóð að
tilraununum og segjast talsmenn þess hafa farið í einu og öllu að
fyrirmælum sem þeim ber að fylgja við lyfjaprófanir. Málið er í
rannsókn.
ok.. ég skil
ekki hvað fær fólk til þess að sammþyggja svona lagað. Fólk sem er
alveg heilbrigt er tilbúið að hætta lífi sínu fyrir smá extra
pening, þó það sé oft mikil upphæð þá geta afleiðingarnar verið
afar slæmar!
já ég var ekki nógu hress með þetta sko!

þetta er maður sem hugsar djúpt kanski gerði hann
eikkvað af sér og er í deep shit! haha augljóslega!

kom mér skemtilega á óvart að þegar ég skrifaði
disgusting á google þá fann ég þessa mynd haha!
Gott á þig þarna!!! disgusting tík! muahahah
ok vó núna er klukkan að ganga eitt en ekki
tólf..
já segji þetta gott í kvöld.. verð að glugga aðeins í hann
Egil!
kv. Dagný Elísa Halldórsdóttir sem trúir ekki að hún hafi
virkilega sett mynd af Lindsay Lohan á bloggið sitt.. ohh what
a shame.. soo lame... who's to blame.. but she came... in the
rain.. dear chasey lane I wrote to complain this letter is my
last... grrrr...
íslenskt rímnaflæði og það á ensku!